Katrín Sigríður
Júlíu Steingrímsdóttir
Frambjóðandi í 4. sæti hjá
Viðreisn í Reykjavík norður

Málefnin
Ég kalla eftir skýrri og afdráttarlausri afstöðu. Við í Viðreisn þurfum að byggja stefnu okkar á raunverulegum lausnum sem hægt er að framkvæma strax í þágu almennings
Efnahagsmál
Besta leiðin til að koma böndum á verðbólgu og háa vexti er innganga í ESB og upptaka evru.
Við eigum að hefja þá vegferð án tafar en þangað til þurfum við að beita öðrum ráðum til að tryggja stöðugleika í efnahagsmálum.
Heilbrigðismál
Aðgengi að heilbrigðisþjónustu er lykilatriði.
Það á ekki að skipta máli hvort það sé ríkið eða einkaaðili sem veitir hana.
Bygging nýs Landspítala skiptir verulegu máli en við megum ekki slá öllum umbótum á frest þar til nýr spítali er tekinn í notkun. Bregðast þarf strax við vanda á t.d. bráðamóttöku með afgerandi hætti.
Fæðingarorlof og dagvistun
Fæðingarorlofsmál eru í ólestri og verðandi foreldrar eiga ekki að þurfa að vera á milli ótta og vonar vegna tekna.
Hækka þarf greiðslur, bjóða upp á valkvæða lengingu og sveigjanleg skilyrði.
Skapa þarf lausn á dagvistunarvandanum í nánu samstarfi við sveitarfélögin í eitt skipti fyrir öll.
Útlendingamál
Stjórnvöld þurfa að tryggja fullnægjandi móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd, en ekki halda þeim í óvissu um langa hríð. Mannúð og skynsemi þurfa að ráða för í þessum málum.
Innflytjendur auðga íslenskt samfélag og við þurfum að halda rétt á spilunum í málaflokknum, auka möguleika til inngildingar og greiða aðgengi að atvinnuleyfum.
Menntamál
Standa þarf með kennurum og byggja upp virðingu fyrir því mikilvæga starfi sem á sér stað í grunn- og leikskólum landsins.
Það voru mistök á sínum tíma að stytta framhaldsskólann niður í þrjú ár og það þarf að endurskoða skipulag skólastigsins með námið og velferð nemendanna í huga.
Auðlindamál
Kvótakerfið virkar vel til að vernda fiskistofna og auka arðsemi en tryggja þarf að þessi auðlind sé í eigu þjóðarinnar, ekki einstaklinga.
Tryggja þarf að auðlindir Íslands nýtist þjóðinni allri, séu sjálfbærar til lengri tíma og að nýting þeirra stuðli að bættum efnahag og bættu atvinnulífi út um allt land.
,,Almenningur í landinu kallar eftir afdráttarlausri afstöðu, skýrri sýn á málefnin og raunverulegum lausnum sem hægt er að ráðast í strax.”
Katrín Sigríður – 15. október 2024
Það sem býr að baki
Viðreisn
- Varaþingmaður frá 2021
- Forseti Uppreisnar 2021-22
- Stjórn Viðreisnar 2021-22
- Trúnaðarstörf frá stofnun Viðreisnar


Menntun og störf
- Klínískur barnasálfræðingur
- Sálfræðingur hjá Samtökunum ’78
- MSc Klínísk sálfræði – HÍ
- BSc Sálfræði – HÍ
Pistlar og þingræður
-
Dánaraðstoð í Kveik
Mér þótti mjög vænt um að sjá vandaða umfjöllun um dánaraðstoð í Kveik í kvöld. Það er mikilvægt að halda þessari umræðu á lofti enda er lögleiðing dánaraðstoðar í mínum huga mikið mannréttinda- og frelsismál. Þess vegna lagði ég fram frumvarp um lögleiðingu dánaraðstoðar þegar ég tók sæti á Alþingi fyrir Viðreisn síðastliðið vor. Frumvarpið…
-
Tökum afdráttarlausa afstöðu með geðheilbrigði barna
Þrátt fyrir vitundarvakningu um geðheilsu er aðgengi að greiningum og meðferð fyrir börn langt frá því að vera viðunandi. Ríkisendurskoðun gaf íslensku geðheilbrigðiskerfi falleinkunn, sérstaklega hvað varðar biðlista og aðgengi barna að þjónustu. Biðtími eftir ADHD-greiningu er tvö ár og þrjú ár þegar grunur leikur á um einhverfu, sem er bæði óásættanlegt og skaðlegt. Á…
-
Að bíða og vona það besta
Það er eitthvað kjánalegt við þá stöðu sem nú er uppi í íslenskum stjórnmálum. Ríkisstjórnarflokkarnir sitja hver í sínu horni og bíða eftir næstu kosningum. Almenningur, sem á að njóta góðs af ákvörðunum stjórnmálamanna, situr eftir í súpunni á meðan ráðamenn eru uppteknir af því að tryggja sín sæti á næsta kjörtímabili. Það er eins…
-
Vetur íhalds eða frelsis?
Alþingi Íslendinga er komið aftur á fullt skrið eftir sumarið (sem kom reyndar aldrei á höfuðborgarsvæðinu) og ríkisstjórnin er búin að birta þingmálaskrá sína. Stefnuræða forsætisráðherra er að baki sem og umræður um hana. Þær umræður báru þess greinilega merki að forystufólk allra flokka á þingi er komið í kosningaham, enda má búast við því…
-
Framsaga fyrir frumvarp um dánaraðstoð
Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um dánaraðstoð. Meðflutningsmenn mínir eru hv. þingmenn Hanna Katrín Friðriksson, Sigmar Guðmundsson, Guðbrandur Einarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Í frumvarpinu er lagt til að heimila einstaklingum sem glíma við ólæknandi sjúkdóm og búa við ómeðhöndlanlega og óbærilega þjáningu að þiggja dánaraðstoð og hins vegar að heimila læknum…